3.5.2010 | 21:31
B-listi Framsóknar og óháðra í Vestmannaeyjum
B-listi Framsóknar og óháðra fyrir sveitarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum 2010 hefur verið samþykktur. Hann skipar fjölbreyttur hópur karla og kvenna, sem eiga það sameiginlegt að vilja berjast fyrir auknu lýðræði, samvinnu og gegnsæi í stjórnun Vestmannaeyja.
Við teljum mikilvægt að bæjarbúar hafi raunverulegan valkost á miðju stjórnmálanna. B-listi Framsóknar og óháðra hafnar öfgum til hægri og vinstri og vill efla Vestmannaeyjar með beinni þátttöku bæjarbúa í stjórnun og stefnumótun bæjarins. Með samvinnu, opinni stjórnsýslu og íbúalýðræði getum við byggt saman betra samfélag.
Listinn er þannig skipaður:
Sigurður E. Vilhelmsson, líffræðingur
Sonja Andrésdóttir, matráður
Eggert Björgvinsson, tónlistarkennari
Eydís Unnur Tórshamar, sjúkraliði
Jónatan Guðni Jónsson, grunnskólakennari
Sigurbjörg Kristín Óskarsdóttir, tryggingaráðgjafi
Sigrún Hjörleifsdóttir, ráðskona
Sveinn Friðriksson, verkamaður
Oddný Garðarsdóttir, húsmóðir
Jóhann Þorvaldsson, vélstjóri
Íris Jónsdóttir, verslunarmaður
Viktor Hjartarson, verkamaður
Hallgrímur Rögnvaldsson, verkstjóri
Skæringur Georgsson, húsasmíðameistari
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.