25.4.2007 | 22:48
Vígsla Framsóknarheimilisins
Á morgun, fimmtudaginn 26. apríl mun landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, vígja húsnæði Framsóknarfélags Vestmannaeyja við Kirkjuveg, sem jafnframt verður kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins fyrir þessar alþingiskosningar. Athöfnin hefst kl. 18:00 og verður boðið upp á grillað lambakjöt og fleira góðmeti. Því er tilvalið að taka fjölskylduna með og fá sér bita og rabba við Guðna og Bjarna, Eygló og Lilju Hrund Harðarbörn, frambjóðendur Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.