13.2.2007 | 17:59
Utandagskrárumræða á Alþingi
Lúðvík Bergvinsson blés til utandagskrárumræðu um Vestmannaeyjar á Alþingi í dag. Það er ótvírætt merki um að kosningar eru í nánd. Umræðan varð að vísu heldur sérkennileg þar sem fyrirspurnir Lúðvíks snéru allar, að því er virðist, að samgöngu- og hafnarmálum en þrátt fyrir það beindi hann þeim til viðskipta- og iðnaðarráðherra, en ekki samgönguráðherra.
Líklegast er þó að þingmanninum sé orðið ljóst að ekkert gagn er að leita til ráðherra Sjálfstæðisflokksins varðandi málefni Vestmannaeyja. Það hefur sýnt sig aftur og aftur. Þannig hafði Framsóknarflokkurinn
frumkvæði að þeim vaxtarsamningum sem gerðir hafa verið um landið og miklar vonir eru bundnar við, m.a. í Vestmannaeyjum. Þá hafa ráðherrar Framsóknarflokksins beitt sér fyrir auknum fjárframlögum til Hraunbúða og Heilbrigðisstofnunarinnar.
Þá hafa þingmenn Framsóknarflokksins verið duglegir við að taka upp samgöngur til Vestmannaeyja. Þannig hefur Hjálmar Árnason staðið fyrir umræðum utan dagskrár um málið og nú síðast er hann meðflutningsmaður að þingsályktunartillögu um bættar samgöngur til Eyja, einn stjórnarliða.
Það er því gott að sjá að Samfylkingin er farin að átta sig á að ef einhverjir innan núverandi ríkisstjórnar standa vörð um hag Vestmannaeyja eru það Framsóknarmenn.

Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það geri ég ekki. Hann Magnús Þór má eiga það að hann er duglegur að taka upp mál okkar Eyjamanna á þingi. Það hefur því miður lítið upp á sig, þar sem hann er valdalaus innan þingsins og því miður fyrir Frjálslynda hefur hann líklega málað sig og flokkinn sinn út í horn þegar kemur að stjórnarmyndun eftir kosningar. Ég sé því varla að staða Magnúsar á þingi muni breytast neitt í vor, ef hann nær kjöri.
Ritstjóri, 13.2.2007 kl. 20:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.