13.12.2006 | 11:18
Til hvers eru prófkjör?
Heldur þykir ritstjóra sérkennileg sú ákvörðun kjördæmisþings Samfylkingarinnar um síðustu helgi að munstra í fjórða sæti listans Guðnýju Hrund Karlsdóttur úr Reykjanesbæ. Opinber ástæða þess að kjördæmisþingið tekur svona fram fyrir hendurnar á þeim sem grunlausir gengu til prófkjörs er sú að sá frambjóðandi sem lenti í 4. sæti í prófkjörinu hefur horfið til annarra starfa. Þessi aðgerð lýsir þó frekar vantrausti á þá sem næstir komu í prófkjörinu, því eðlilegast hefði verið að þeir hefðu færst upp listann.
Í stað þess er kölluð inn manneskja sem ekki bauð sig fram, ekkert hefur haft sig í frammi í tengslum við prófkjörið og er væntanlega alls ókunn flestum þeim sem þó kusu í prófkjörinu. Maður veltir fyrir sér hverjar voru raunverulegar ástæður fyrir þessum gjörningi. Varla hefur það verið skortur á frambjóðendum af Reykjanesinu, því í 7. sæti í prófkjörinu varð Jenný Þórkatla Magnúsdóttir úr Reykjanesbæ. Hún færðist upp í 6. sæti við að Jón Gunnarsson gekk úr skaftinu og hefði nú með réttu átt að færast upp í það fimmta.
Það er þá kannski að Samfylkingarmönnum hafi þótt hlutur “Eyjamanna” helst til mikill, því í efstu fjórum sætunum hefðu þannig átt að verða þrír frambjóðendur sem titla sig Eyjamenn, þó aðeins sé einn þeirra búsettur í Eyjum og eigi þar hagsmuna að gæta.
Þeim hlýtur að svíða þessi framkoma sem lögðu í mikla vinnu og mikinn kostnað til að ná árangri í þessu prófkjöri Samfylkingarinnar þegar inn á listann kemur manneskja sem engan áhuga hafði á að taka þátt í prófkjörinu, ekkert lagði á sig til að vinna sér sæti á listanum en er greinilega talin frambærilegri en þær góðu konur sem náðu verðskulduðum árangri en njóta ekki náðar flokkseigendafélagsins.
Breytt 24.1.2007 kl. 10:23 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning